Í þremur bindum ritverksins Í ljósi sannleikans er að finna alls 168 fyrirlestra sem eru efnislega samofnir og miðla heildarmynd af öllu sköpunarverkinu.
Fyrirlestrarnir sem teknir eru saman í þessari bók urðu til á árunum 1923 til 1938 en hafa enn þann dag í dag engu glatað af tjáningarmætti sínum. Í þeim er að finna víðfeðma útlistun á heiminum en hún byggir á náttúrulögmálum og lýkur upp fyrir lesandanum huldu samhengi lífsins og færir honum þannig dýrmæta leiðsögn í lífinu.
Lestu meira »
Abd-ru-shin
Abd-ru-shin, höfundur ritverksins Í ljósi sannleikans hét Oskar Ernst Bernhardt. Hann var Þjóðverji og fæddist 18. apríl 1875 í Bischofswerda (nálægt Dresden). Nafnið Abd-ru-shin, höfundarnafn hans þegar hann ritaði fyrirlestra sína um Gralsboðskapinn, merkir efnislega Þjónn ljóssins.
Árið 1928 fluttist Oskar Ernst Bernhardt búferlum til Austurríkis þar sem hann bjó þar til þjóðernissósíalistar tóku eigur hans eignarnámi og bönnuðu verk hans Í ljósi sannleikans.
Lestu meira »
Frá Gralsblöðum til Lokaútgáfu
Ritverk Abd-ru-shin Í ljósi sannleikans – Gralsboðskapur varð til á tæplega tveimur áratugum. Fyrst birtust nokkrir fyrirlestrar í Gralsblöðum (Gralsblätter). Árið 1926 kom fyrsta litla útgáfa Gralsboðskaparins út, árið 1931 stóra útgáfan í einu bindi og að lokum þriggja binda ritverkið eins og það liggur fyrir í dag.
Lestu meira »
Stiftung Gralsbotschaft
Stofnunin Stiftung Gralsbotschaft er sjálfseignarstofnun óháð trúarskoðunum. Hún var stofnuð árið 1951 að tilhlutan Maria Bernhardt, ekkju höfundar Gralsboðskaparins, og þar er gefinn út fjöldi valinna rita um spurningar sem lúta að viðhorfi til lífsins. Meginviðfangsefni útgáfustarfseminnar er ritverkið Í ljósi sannleikans eftir Abd-ru-shin. Auk þessa grundvallarrits um mannlífið, sem hefur nú verið þýtt á 18 tungumál og sem fáanlegt er í um það bil 90 löndum heims, eru þar einnig gefin út fjölmörg önnur verk.